Um ODRI á íslensku


2012

2013

 

 

Круглый стол «Русский язык и русская культура в Исландии»2013 год.Рейкьявик.

Академик Виталий Костомаров получил Русско-Исландский словарь из рук автора Хельги Харальдссона
«Вспоминая Гагарина» пришли посмотреть и дети

2014

2015

2017

2018

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Rússlands og Íslands (ODRI) hefur efnt til nýs heiðursmerkis, Fyrir vináttu og samstarf milli Rússlands og Íslands, í tilefni af 75 ára afmæli stjórnmálasambands milli landanna.
Þann 4. október 2018 voru liðin 75 ár frá því að stofnað var til stjórnmálasambands milli Rússlands og Íslands. Samband þetta hófst á erfiðum tímum þegar heimsstyrjöldin síðari var í algleymingi og Ísland hafði lýst því yfir að konungssambandi við Danmörku yrði slitið. Enda þótt langt sé á milli Rússlands og Íslands hafa löndin jafnan staðið saman þegar mikið hefur legið við og íbúar hvors lands um sig hafa sýnt menningu hins áhuga. Íslenskir sjómenn tóku þátt í Íshafsskipalestum stríðsáranna. Sovétríkin veittu Íslandi stuðning þegar þorskastríðin stóðu yfir og Ísland, lítið eyríki, stóð í deilum við Bretland og barðist fyrir efnahagssjálfstæði sínu. Halldór Kiljan Laxness, sígildur íslenskur rithöfundur, ferðaðist um Sovétríkin. Á Kvikmyndasafni Íslands er stærsta safn rússneskra kvikmynda í heiminum. Íslenskir stúdentar hafa haldið til háskólanáms í Rússlandi allt frá sjötta áratug 20. aldar og rússneskir námsmenn hafa sótt sér háskólamenntun til Reykjavíkur frá því á níunda áratugnum. Sovéskir íþróttaþjálfarar hafa lagt lóð sitt á vogarskálar framfara í íþróttum á Íslandi, en íslenskir knattspyrnumenn leika nú með liðum í rússnesku úrvalsdeildinni. Árið 1950 voru félagasamtökin MÍR stofnuð í Reykjavík, eða félag um menningartengsl Íslands og Rússlands. Árið 2012 varð svo ODRI, Vináttufélag Rússlands og Íslands, til í Moskvu.
Nú á dögum er heimurinn opnari en áður. Nokkuð er um að rússneskir ríkisborgarar búi á Íslandi og eins er Íslendinga að finna meðal íbúa Rússlands. Á afmælisári stjórnmálasambandsins varð það að ráði ODRI-félaga að stofna til sérstaks Vináttu-heiðursmerkis á vegum félagsins og veita það þeim sem hafa lagt hönd á plóg við að efla og þróa einlæg samskipti milli þjóðanna tveggja.
Þessar verðlaunaafhendingar hafa nú þegar farið fram:

— 11. september í Moskvu þegar þess var minnst að 115 ár voru liðin frá fæðingu Míkhaíls Steblín-Kamenskíjs en hann var þekktur sovéskur íslenskufræðingur og heiðursdoktor við Háskóla Íslands

 

Первые награждённые медалью

 

 

 

4. október í Moskvu, á kvöldvöku í tilefni af 75 ára afmæli stjórnmálasambands milli landanna tveggja en hún var haldin með stuðningi sendiráðs Íslands í Rússlandi.

Stjórnarmenn ODRI undirbúa nú næstu heiðursmerkisveitingar í Reykjavík:

4. október í sendiráði Rússlands á Íslandi